stolt fjölskylda þó hýr sé

Ég fékk góðfúslegt leyfi systur minnar til að birta þessa fallegu fjölskyldumynd af hennar kjarnafjölskyldu ásamt tengdasyninum. Ég er um það bil að rifna úr monti og jafnframt með kökk í hálsi. Hvað gekk mér eiginlega til með að koma ekki til Íslands í sumar? Getur einhver sagt mér það?

Lifið í friði og verið hýr.

3 Responses to “stolt fjölskylda þó hýr sé”


  1. 1 baun 12 ágú, 2008 klukkan 3:18 pm

    glæsileg fjölskylda!

  2. 2 parisardaman 12 ágú, 2008 klukkan 5:09 pm

    Já, ég er kannski ekki rík af peningum en mannauðurinn í kringum mig er ekkert smáræði, takk.

  3. 3 Nafnlaus 13 ágú, 2008 klukkan 2:30 am

    Flott fjölskylda og ég er líka stolt af því að tengjast þessum fríða hópi sem gekk niður Laugaveginn á laugardaginn. Takk fyrir innlitið, ég er líka löt að kommentera. Góðar stundir. Elma


Skildu eftir svar