Þetta verður hörkuvika. Þarf að hitta ýmsa sem eiga leið um borgina, ganga frá nokkrum lausum endum varðandi ágúst, endalaust að vera til staðar fyrir tengdaforeldrana í þeirra endalausu flutningum, halda eitt stykki matarboð, mæta í tvö stykki lokahóf í tónlistarskólanum, fara í bankann (það er langversta verkefnið, ekki að ég skuldi nokkuð, ég bara fæ alltaf andateppu þegar ég geng inn í banka og þetta mál verður ekki leyst öðruvísi en augliti til auglitis við gjaldkera eða jafnvel útibústjóra), kaupa afmælisgjöf og aðra (má ekki kosta mikið, en verður að líta út fyrir hið gagnstæða, flókið mál), kaupa eitthvað handa litlu frænku, kaupa eitthvað af mat til að fara með í kreppulandið (komnar óskir um parmesan), redda, stella og taka til, og auðvitað þarf maður að halda áfram að vera móðir, kona og meyja í gegnum þetta. Ég nenni þessu ekki. Mig langar að grafa holu, leggjast ofan í hana og grafa yfir.
En auðvitað bretti ég upp ermarnar og tek þetta með stæl. Þannig er það bara.
Og það skemmtilega er náttúrulega að það styttist í heimferð. Fjölskylda og vinir, Reykjavík, sundlaugarnar og allt hitt, bara þarna rétt hadan við hornið.
Lifið í friði.
Vesen þetta með meyjuna.
hvað þýðir að stella?
Að stella rímar við hella og þýðir bara að stússast. Ég hef ekki hugmynd um hvaðan það kemur, né hvort það er í orðabók (maðurinn minn er búinn að loka orðabækurnar á bakvið bókastafla sem ég þarf greinilega að byrja að rella yfir (rímar einmitt líka við stella) því annars fer hann líklega ekki neitt.
Það er Stellað heil ósköp í Svíþjóð. Kannski skaust orðið þaðan inn í Íslensku.
Minni á að ég fer nú guðræknislega í laugarnar næstum því daglega, þannig að endilega habbbðu samband þegar þú kemur!