Í gær lét ég verða af því sem ég hef verið að spá í síðan ég flutti hingað, tók grillið úr geymslunni og bar það upp í “skóginn okkar” og grillaði með nágrönnum sem eru að flytja á brott. Það var fáránlega indælt, ég næ því ekki að við skulum ekki hafa gert þetta fyrr. Og auðvitað áttum við að láta fleiri vita, nóg er af plássi. Það var nákvæmlega engin truflun af öðru fólki, okkur leið eins og við værum lengst uppi í sveit. Ég áttaði mig á því um kvöldið að þetta var fyrsti laugardagur í útsölu, það skýrir líklega mannfæðina. Gott að vera með neyslubremsu og algerlega laus við að “þurfa” á útsölurnar.
Í dag verður svo pikknikk í Vincennes, aftur sól og hiti. Lækur að baða sig í.
Svo verður bara pökkun á morgun og brottför til nyrsta þriðjaheimsríkis í heiminum. Vikuna 6. júlí er ég laus á daginn og óska hér með eftir leiðsögumanni í dagsgöngu á fjall í nágrenni höfuðstaðarins. Svo þarf að skipuleggja bloggarakveðjuvinahittingskaffiboð. Hverjir eru lausir hvenær?
Lifið í friði.
við Hjálmar erum fír og flamme að rölta með þér á fjall:) fullt af þægilegum fellum og fjöllum í nágrenninu. ætlarðu að taka börnin með?
Ég missi þá af því að hitta þig, enn einu sinni. Verð í Danmörku á þessum tíma.
Nei, Baun, var frekar að hugsa um smá hörku, sko.
Arngrímur, okkur er ekki skapað nema að skiljast, he he.
Við erum nokkuð laus við nema næstu tvö mánudagskvöld, svo Skálholt þann 12 fyrir tónleika 15. og 19. júlí.
Læt Baun og Hjálmari eftir fjallaprílið, samt… :þ
þá dettur mér í hug Vífilsfell, það er fínt fjall að ganga á:)
Það getur nú varla þurft hörku til þess að ganga á Vífilsfell fyrst menn hlupu þar upp á hverjum degi í den.
(og svo heitir það bloggvinakveðjuhittingur)
Ég sem setti langlokuna inn bara fyrir þig ghrafn, fæ svo bara fokking leiðréttingu að launum.
Baun, þið nefnið daginn og ég kem á Vífilfell. Ég hleyp EKKI upp, verð örugglega lafmóð.
Hildigunnur, ég finn kvöld fyrir okkur, vil samt fyrst ráðfæra mig við móður mína sem mér skilst að sé með dagatalið á lofti að skipuleggja og skipuleggja meira.
ég nenni ekki Esjunni, það er varla hægt að fá bílastæði við Þverfellshornið. en Móskarðshnjúkar koma auðvitað til greina.
og Vífilsfell er fyrirtaks fjall að ganga á, skil ekki nöldrið í honum GHrafni.
heh, og svo laug ég eins og ég var löng til með mánudagskvöldin, næsta er laust en hins vegar ekki þriðjudagur og miðvikudagur, þá eru æfingar með raddþjálfaranum og é máekki sleppa…
Hvernig væri þá að stefna að mánudagskvöldinu?