Hótel í miðbæinn

Ég er búin að vera að pæla í þessu með andstöðu við stórt hótel í miðbæinn, og rask á Ingólfstorgi. Ég hef, eftir mikla umhugsun og eftir stutta, en lærdómsríka, reynslu mína af því að fylgja erlendum ferðalöngum sem eiga að eyða nótt í Reykjavík áður en haldið er út á land, í fjallaferðir, á gististaði víðsvegar um borgina og nágrenni, komist að þeirri niðurstöðu að það þurfi a.m.k. tvö vel væn hótel niðri í miðbæ. Við viljum byggja upp ferðaþjónustu. Við viljum endurvekja líf í miðbænum. Við verðum að átta okkur á því að til þess að slíkt verði gert með stæl, og af gestrisni (þegar þið ferðist til Parísar, viljið þið geta verið miðsvæðis, hver er munurinn?) verður að vera nóg af gistirými á verulega góðum stað, nærri Laugaveginum, Skólavörðuholtinu og miðbænum.

Hvar á hótelið að vera? Það er stóra spurningin. Kunningi minn sem hefur stúderað viðhorf Reykvíkinga til miðbæjarins, segir að enginn íbúa beri í raun mikla virðingu fyrir Ingólfstorgi (sem allir kalla reyndar Hallærisplanið – ég líka, en mér finnst Hallærisplanið reyndar að mörgu leyti alveg hreint ágætt samt). Langflestum fannst víst fásinna að varðveita aðstöðu fyrir hjólabretta- og mótorhjólafólkið sem safnast þar saman. Mér finnst að það þurfi að vera aðstaða fyrir slíkt í miðbænum, hjólabrettafólk er alla vega, að mínu viti, skemmtilegur hluti mannlífsins og á algerlega heima þar (ég myndi reyndar líka vilja hafa körfubotavelli og fleira skemmtilegt alvöru city-dæmi, en ég veit ekki hvort þörfin er fyrir hendi, eða hvort það myndi nýtast – mótorhjólin geta vissulega farið aðeins lengra í burtu, enda vélknúin farartæki).
Alla vega er það deginum ljósara að það er ekki hægt að setja fólk sem vill eyða einni eða nokkrum nóttum í Reykjavík eitthvert upp í Borgartún eða lengra í austur. Það bara virkar ekki þannig. Tvö risastór, og þokkalega góð (helst ekki of dýr) hótel niðri í bæ, myndu sannarlega lífga upp á borgina.
Málið er að leyfa öllum arkítektum heimsins að taka þátt í samkeppni um hugmyndir að staðsetningu, svona verður vart gert nema með smá fórnarkostnaði. Hvað má missa sín? Hverju viljum við halda?

Lifið í friði.

12 Responses to “Hótel í miðbæinn”


  1. 1 hildigunnur 26 nóv, 2011 klukkan 12:35 am

    vá hvað ég er sammála! það má aldrei stinga upp á neinni breytingu neins staðar, alltaf skal koma fólk sem berst hatrammlega á móti. Nánast sama hvað umhverfið var óspennandi sem fyrir var.

    Mér fannst til dæmis bara allt í fína lagi að rífa ljótu lágreistu kofana á Laugavegi 4-6 þó þeir væru partur af gömlu götumyndinni og hluti af byggingasögu borgarinnar. Litlir og ljótir og til skammar. Mikið flottara sem kom í staðinn og í ágætis stíl við umhverfið.

    Mér finnst líka bara allt í lagi að breyta um nafn á austurhluta Skúlagötu og þar um kring. Mér hafa aldrei fundist nógu góð rökin: Já en þetta hefur alltaf verið svona! til að ekki megi hrófla við neinu neins staðar.

    Já ég berst líka fyrir því að við leggjum niður tóninn H… (reitar kannski færslu, satt að segja).

  2. 2 hildigunnur 26 nóv, 2011 klukkan 1:23 am

    heyrðu já ég segi reyndar alltaf Ingólfstorg og held ég hafi ekki sagt Hallærisplanið í áratugi, fyrir utan þegar ég var að segja krökkunum mínum sögur…

  3. 3 parisardaman 26 nóv, 2011 klukkan 10:22 am

    Ég er spennt að vita hvað fólk notar almennt, og hvert viðhorf þess er til torgsins. Ég er sek um að hafa á sínum tíma undirritað mótmæli gegn raski torgsins, en sé nú að það var vitlaust af mér.

  4. 4 baun 27 nóv, 2011 klukkan 12:34 am

    Ég kalla þetta Ingólfstorg, Hallærisplanið er bara vond minning. Mín vegna mætti byggja þarna hótel, en ekki samt eitthvert risaljótt skrímsli.

  5. 5 parisardaman 27 nóv, 2011 klukkan 8:18 pm

    Nei, sammála því. Ekki of hátt og ekki of ljótt, takk. Og helst ekki of dýrt, er ekki eitthvað af lúxushótelum þarna? Ég vil sjá bara svona venjuleg, góð næs hótel sem lífga upp á mannlífið, það myndi bústa upp litlu staðina, ef túristunum væri ekki smalað út í úthverfin, sáróánægðum.

  6. 6 Bóla 28 nóv, 2011 klukkan 4:52 pm

    Bóla skrifar:
    Já af hverju ekki Hallærisplan, nafn sem minnir okkur á sögu sem er nær okkur en landnámsmaðurinn. En það er kannski ekki aðalatriðið.
    Hér er torg í miðri höfuðborginni sem engum finnst fallegt en mörgum þykir indæll áningarstaður allan sólarhringinn til að fá sér pulsu og ís. Þar er líka mjög góð ferðamannaþjónusta, nýtilkomið kaffihús, ágætis veitingahús við torgið og við næstu götur. En fólki finnst “torgið” ljótt.
    Nú eru tugir arkitekta að vinna í samkeppni um torgið og næsta umhverfi þess, til þess einmitt að þar verði falleg og lifandi borgarrými fyrir allan almenning og ferðafólk.
    Hvernig væri að hinkra við og sjá hvað kemur út úr þessari samkeppni ?
    Hvernig væri hætta að fussa og sveija á blogginu án framtíðarsýnar um Kvosina en athuga frekar hverju verður stungið upp á?
    Hvernig væri að hætta að líta á Morgunblaðshöllina og Hlöllabáta sem heilagar kýr?

  7. 7 Arngrímur 6 des, 2011 klukkan 7:12 pm

    Það er þegar hótel við Ingólfstorg. Mín vegna mætti rífa brúnu klessuna þarna líka og reisa annað hótel, helst í stíl við eldri húsin á svæðinu. En tvö hótel til viðbótar þarf alls ekki, og síst af öllu að rústa Sjallanum í leiðinni einsog síðustu plön gerðu ráð fyrir.

  8. 8 parisardaman 7 des, 2011 klukkan 11:15 am

    Jú, ég held það þurfi tvö hótel í viðbót, eða eitt risastórt. Best væri að tala um herbergjafjölda, það er t.d. allt fullt nú um áramótin og ríkir algert ófremdarástand á sumrin. Finnst þér í alvöru ásættanlegt að troða fólki í gistingu inni í iðnaðarhverfum í Kópavogi?
    Varðandi Sjallann, er ég ekki alveg sannfærð, en þarf að skoða teikningar og átta mig aðeins á þessu áður en ég tjái mig. Mér skilst að húsið sem talað er um að hverfi, sé nú þegar í hvarfi inni á milli húsa og sjáist hvergi. Salurinn, sem nú heitir Nasa, færi niður um eina hæð, ofan í kjallara. Búið sé að eyðileggja Sjallann að innan, til dæmis frábæru klósettin, sem ég notaði þegar ég var armur sumarstarfsmaður á Símanum og mötuneytið okkar var þarna. Ég held að skaðinn sé skeður, en ég endurtek, ég þarf að sjá myndir (nú eða komast í vettvangsferð, sem væri enn betra).

  9. 9 Arngrímur 7 des, 2011 klukkan 9:57 pm

    Mér sýndist eitthvað skrímsli eiga að rísa þarna ofaná gamla húsinu. Ég hef alveg samúð með hótelfæðinni miðsvæðis, en ég vil halda moggahöllum framtíðarinnar frá Austurvelli og nærumhverfi. Ég vil sjá annarslags enduruppbyggingu þar. Átti ekki að rísa hótel við Hörpu hvort eð er? Mér finnst ég amk hafa heyrt eitthvað um það.

  10. 10 parisardaman 9 des, 2011 klukkan 11:48 am

    Ég held að þetta hús hafi alls ekki átt að kallast á við Moggahöllina. Fyrir mér mætti hún hverfa, nú eða þá að hún yrði þiljuð upp á nýtt í Disney-platantíkstílnum (ég meina það, það yrði skárra).
    Og jú, það á líklega að rísa hótel við Hörpuna, steingleymdi því. Í raun er aðalmálið að telja herbergjafjöldann. Og passa upp á að ekki sé eingöngu verið að bjóða stílfærð lúxusherbergi. Það er ljóst að Ísland er mikið tískuland og mjög líklegt er, að ef við höldum rétt á spilunum (og vitanlega ef við viljum það), getum við haldið Íslandi vinsælu í langan tíma. En alls ekki með því að parkera fólki í úthverfunum, það bara virkar ekki. Tala af reynslu, bæði með Frakka hér og Íslendinga í Frakklandi. Túristamassinn er nefnilega alls ekki lúxuslið sem spanderar í hótel, heldur frekar milliklassafólk sem er til í að spara við sig hótel, en eyða frekar í mat og jafnvel eitthvað nýtilegt (ekki lunda). Það er langmest spennandi hópurinn, sá sem hægt er að fídelísera og sem auglýsir svo út frá sér.

  11. 11 Arngrímur 9 des, 2011 klukkan 2:11 pm

    Já. Ég hef bara áhyggjur af útfærslunni frekar en hugmyndinni :)

  12. 12 parisardaman 9 des, 2011 klukkan 8:05 pm

    Og ekki að ástæðulausu, miðað við ýmsan ósóma sem hefur fengið að vaða uppi í skipulagsmálum borgarinnar!


Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s





Follow

Get every new post delivered to your Inbox.