Alþjóðahúsið kl. 20

Tvær ákveðnar konur í lífi mínu (önnur þeirra mun synda með mér í kvöld) hafa ákveðið að við förum í Alþjóðahúsið, gegnt Þjóðleikhúsinu.

Hver veit nema dansað verði, en mest verður þó rætt um… tja, síðast voru það gervilimirnir sem stóðu upp úr.

 

Lifið í friði.

6 Responses to “Alþjóðahúsið kl. 20”


  1. 1 Glúmur Gylfason 27 Ágú, 2008 kl. 1:47 e.h.

    Gervilegar gerast frúr
    þótt góður maki sé þeim trúr
    með gervilimi öllu úr
    einar fá sér draumatúr.

  2. 2 Þórdís 27 Ágú, 2008 kl. 1:49 e.h.

    Ég hefði skellt mér í Alþjóðahúsið ef ég væri ekki upptekin við útvarpsþáttargerð í kvöld. Verð með í huganum!

  3. 3 hildigunnur 27 Ágú, 2008 kl. 3:59 e.h.

    Reikna með að koma 🙂

  4. 4 kristín 28 Ágú, 2008 kl. 12:01 f.h.

    Kæra Parísardama, ég biðst afsökunar á fjarveru minni í kvöld. Um er að kenna gölluðum ganglimum. Kannski maður fái sér bara gervihné?

  5. 5 Gummi 28 Ágú, 2008 kl. 2:22 f.h.

    Skal koma næst (ef það verður næst)

  6. 6 parisardaman 28 Ágú, 2008 kl. 11:01 f.h.

    Það verður alltaf næst… en ekki fyrr en næst. Ég held ég gæti alveg orðið borgarstjóri eða ráðherra, ég er ótrúlega flínk í að þjóta á milli staða og taka í hendurnar á fólki. Þannig verður dagurinn í dag.


Skildu eftir svar við Gummi Hætta við svar




Nýlegar athugasemdir

hildigunnur um Ósýnileiki
showerhead Percolato… um
parisardaman um Kveðja
Margrét H um Kveðja
koparskál um Tau frá Tógó