Lucie og Sólrúnu finnst Agnetha sætari en Anni-Frid. Öllum fannst Agnetha alltaf sætari. Nema mér. En kannski var það endalaus þörf mín á jafnvægi í heiminum sem leiðir til þess að halda sífellt með minni máttar. Og kannski líka meðvitund um að ég var ekki eins sæt og margar vinkvenna minna.
Og í Sólrúnu blundar greinilega þessi tendens, því hún bætti við þegar Lucie var búin að undirstrika vel og fjálglega hvað Agnetha væri langfallegust, að þær væru samt báðar mjög fallegar.
Lifið í friði.
Var að skrifa komment en það birtist ekki, prófa aftur (sorrý ef þetta kemur tvisvar) 🙂
Sýndu þeim þetta:
Hér er lélegri hljóðversjón en læf:
Ertu með kommentakerfi eins og stebbifr, þar sem þú samþykkir eða hafnar athugasemdum?
Þórdís, í fyrsta skiptið já, þeas. fyrsta skipti frá hverju netfangi.
Jæja, það er þá einhver skýring á þessum einkennilegheitum. En það er samt furðulegt að þriðja kommentið sem ég skrifaði birtist strax! Hin bíða ritskoðunar.
Voðalega nennir annars margt fólk að flækja blogglíf sitt. Stundum þarf maður að skrifa einhverjar furðulegar bókstafarunur (ég geri það alltaf vitlaust), leggja saman tölur, skrá sig inn eða eitthvað álíka asnalegt. Hvers vegna geta ekki bara allir bara notað haloscan?
‘Líf er eftir..’..Blogglífið.. Gúskiló!
Ha? Nei, ég er einmitt frekar þessi einfalda manneskja og tók allar síur af. Hef enda ekki fengið neitt í t-pósti að samþykkja frá Þórdísi. Hún hefur vonandi ekki verið að tala illa um ABBA, það myndi síðan mína aldrei samþykkja. En ég þarf greinilega að leggjast í rannsóknir á þessu eftir matinn.
Sérðu það sem ég sé? Nú bíða þriðju ummæli mín samþykkis.
Þetta er gallað kommentakerfi ef þú færð ekki neitt um þetta.
Það eru krækjur í ummælunum sem bíða samþykkis, kannski mega ekki vera krækjur í kommentunum hérna. Það er eitthvað bogið við þetta allt saman.
Já, ókei, ég sá þetta einmitt núna og er búin að samþykkja. Af hverju mega krækjur ekki koma? Tékka á því.
Það var nú alveg óþarfi að samþykkja allt draslið 😉
En Agnetha er sæt!
Æ, já, ég ruglaðist smá. Tek annað út og kíki svo á Agnethu.
Og ég finn ekkert út úr því í fljótu bragði hvernig ég get tekið þessa krækjusíu af. Treysti mér alveg til að strika sjálf út krækjur og athugasemdir sem ég vil ekki sjá hjá mér. Get þrifið sjálf á minni eigin bloggsíðu, sko.
Kári bað um að þetta færi í uppáhaldskrækjurnar. Sólrúnu finnst flétturnar æði.
Það mega alveg vera krækjur. Eru einhver stopp á kommentum Þórdísar núna?
kræki hér með á sjálfa mig til að vera viss um þetta – en það birtast oft krækjur hjá mér.
ABBA skrabba. glatað band.
ha! víst kom þetta!
Það er kannski bannað að krækja á Agnethu hérna.
Það hlýtur að vera það. Þurfum að prófa fleiri fallegar konur af youtube við tækifæri.
Baun, passaðu þig bara, ég gæti bannað ÞIG!
ég skelf á beinunum.
Fallegar konur, já. Góð tónlist, ekki svo alveg viss.
Er ég þá líka bönnuð?
Stelpur, ég get ekki bannað ykkur, þið eruð of skemmtilegar hvort sem þið fílið Abba eða ekki. Þið fáið bara RISAKNÚS í staðinn.